Aðalvalmynd

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Auður Freyja Bolladóttir

Leikur dagsins

elsku Sigrún...

03. júlí 2006 klukkan 18:44

stórt skarð hefur verið höggvið í vinahópinn... skarð sem ekki verður hægt að fylla aftur... elsku sigrún ég bara skil þetta ekki, ég trúi ekki enn að þetta hafi vrkilega verið þú. ég sit hérna við tölvuna að reyna að skrifa eitthvað fallegt til þín en ég bara get ekki hætt að grenja og sé varla á skjáinn fyrir tárum.....og ég er að hugsa um allar stundirnar í spænsku og í stæ 212.... við gerðum lítið annað en að tala og gera kennarana brjálaða...og þegar ég og eva töluðum ekki saman þá varstu svo góð við mig og við urðum svo góðar vinkonur þá á svo stuttum tíma og við töluðum um allt og ekkert... ég á eftir að sakana þess.... en geymi í hjarta mínu þær góðu minningar með þér.

ég sakna þín sárt sigrún

sitji guðs englar saman í hring, sængin yfir minni.

hvíl í fiði elskan

 
Ragga
Æi elsku Auður mín, ég veit ekki hvað ég á að segja annað en að ég samhryggist þér mjög mikið. Ég get ekki ímyndað mér sársaukann sem fylgir því að missa góða vinkonu sína. Þetta er eitthvað sem enginn ætti að þurfa að ganga í gegnum. Ég sá Sigrúnu á fimmtudaginn og föstudaginn síðasta og hún var svo hress og brosmild eins og alltaf þegar maður sá hana á förnum vegi. Stórt skarð hefur verið höggvið í vinahóp ykkar og mun enginn koma til með að fylla upp í skarðið sem þessi yndislega stelpa skyldi eftir sig, en við vitum að nú er hún á betri stað og fylgist með öllum sem henni þótti vænt um. Ef það er eitthvað sem þig vantar, þó það sé bara að tala, þá er ég alltaf til staðar fyrir þig. Þó við höfum ekki hist oft upp á síðkastið þá vil ég að þú vitir að mér þykir óendanlega vænt um þig, elsku Auður mín. Nú er mín orðin væmin :)
#1
03. júlí 2006 klukkan 21:49
Elsku Auður mín... Ég samhryggist þér innilega... Ég þekkti Sigrúnu ekki rærri því eins vel og þú.. en ég veit hversu gaman var að vera með henni í tímum.. hún hafði indislegan húmor og geislandi bros.. Ég sakna hennar líka...
Ég segi það sama og Ragga.. þótt við höfum ekki verið nánar vinkonur lengi.. þá máttu alltaf hringja.. til að tala eða hvað sem þú villt...
#2
04. júlí 2006 klukkan 01:40
Samhryggist þér innilega... guð veri með þér elsku auður mín*
#3
04. júlí 2006 klukkan 17:52
 
Marta
Ég bara veit ekkert hvað ég á að segja, hörmulegur atbuður. Ég á eftir að sakna hannar. Samhryggist þér innilega elsku Auður mín.
#4
06. júlí 2006 klukkan 18:38
Sæl elskan, já ég samhryggist þér líka... og öllum sem þekktu hana, hún var alveg einstök og frábær manneskja... verður svo sannarlega tómlegt án hennar í skólanum skal ég segja þér.... en vonandi áttu eftir að hafa það gott auður mín, það er alls ekki auðvelt að missa vinkonu!

Hafðu það gott
#5
13. júlí 2006 klukkan 05:06

Skrifa athugasemd

Klukkan

Könnun

á ég að gera myspace síðu???

Leit

Viska

Einginn getur nokkur tíman vitað hvað býr að baki hamingju þinni.

Hamingjustundin rennur sitt skeið og kemur aldrei aftur í sömu mynd. En það þýðir ekki að ekki séu jafn miklar hamingjustundir framundan -þær verða bara öðruvísi.

Þú getur ekki alltaf verið ágnægð/ur með það sem gerir þig ágnægða/n.

Þér gefst meiri hamingja við að gleðja vin, en að hann gleðji þig.